Vanaheimur

Vanaheimur 歌词

年份2016
流派Metal
时长9:18
原文语言IS
浏览量69
歌词坐标

原文歌词

IS
暂时没有翻译,当前显示原文歌词。
18
vanir vísir (vanir eru vísir) flesta fýsir (vissu flesta fýsir) framtíð finna (framtíð sína finna) sögur sinna (frægðarsögur sinna forynja banar ferðalang feikn yfir hana rignir hreykir sér svanur hátt á drang hér sofa vanir hyggnir vaknar vorið (vaknar núna vorið) barn er borið (vanabarn er borið) flýgur freyja (flýgur yfir freyja) djöflar deyja (fimbuldjöflar deyja) nýtt upphaf þegar freyju þér ég fel og frigg skal rækta vandað hugarþel hér svala máttu þreytu þinni því segi ég það fyrsta sinni nú blótum við því barnið sefur vel nýr dagur rís og fer svo allt of fljótt kvöld færist yfir, loks er komin nótt hér svala máttu þreytu þinni því segi ég það öðru sinni nú blótum við því barnið sefur rótt nýr kafli hefst og tunglsins skin er skært og skýin hafa hulu sína fært hér svala máttu þreytu þinni því segi ég það þriðja sinni nú blótum við því barnið sefur vært