Sindur

Sindur کے بول

اصل زبانIS
مناظر16
گیت کے بول کے نقاط

اصل بول

IS
ترجمہ ابھی دستیاب نہیں۔ اصل بول دکھائے جا رہے ہیں۔
18
Einkennileg tilfinning grípur um mig Fyrsta andagift í það sem virðist ómunatíð Ægileg fegurð einnar stakrar stundar Blessar mig svo til í seilingarfjarlægð Nándin við endalokin Afmáir alla merkingu Hins sinnisveika lífsskeiðs Birta fellur á fáránleika Athafna okkar kyns Kaldhæðin sjónarhorn Drepa allstaðar á dyr Allsleysi og örbirgð Virðast allt í einu ríkidæmi þessar stundir slegnar gylltum ljóma Að eilífu glataðar í sögunnar dauðadjúpu sprungum Ó, lof mér bara eina litla stund Að vaka þennan helgi prýdda draum Áður en ég stíg mín hinstu skref Og sleppi takinu á þessari eiturgjöf sem líf mitt var