Gleipnir

Gleipnir 歌詞

アルバムBörn Loka
年2013
ジャンルMetal
時間6:44
原文言語IS
閲覧数3.9K
歌詞座標

原文歌詞

IS
翻訳はまだありません。原文を表示しています。
18
Undan loka fenrir fæddist Fullur hroka víst var sagt Er var þoka þá hann læddist Þungbært ok á heiminn lagt Nú var gaumur að því gefinn Greri aumur hvolpur fljótt Tíminn naumur, enginn efinn Á hann tauminn þyrfti skjótt Fyrstan læðing fengu goðin Fenri þræðI komu á Úlfur skæður, ljótur, loðinn Leikinn bræðI sleit hann þá Þegar drómi fenri festi Falskan dóm þá úlfur hlaut Því með klóm og þrumubresti Nánan fróma fjötur braut Kattarins dynur, konunnar skegg Kynngi mína yfir legg Bjarnarins sinar, bjargsins rætur Bíðum nú í skjóli nætur Fuglsins hráki, fisksins andi Fyrir dverg er hægur vandi Mánuð gekk um margar götur Mér að launum varð sá fjötur Fjöturinn er fjötum grennri Fágæt, göldrótt dvergasmíð Í lyngva þeir áður lögðu fenri Laus hann nú veldur orrahríð Hef ég í mínum höndum gleipni Horfi á móti glyrnum tveim Treysti á óðin, tý og sleipni Takið mig þar og aftur heim Fjöturinn er fjötum grennri Fágæt, göldrótt dvergasmíð Í lyngva þeir áður lögðu fenri Laus hann nú veldur orrahríð Hef ég í mínum höndum gleipni Horfi á móti glyrnum tveim Treysti á óðin, tý og sleipni Takið mig þar og aftur heim