Stofnar Falla

Paroles de Stofnar Falla

AlbumSamaris
Année2013
GenrePop
Durée4:55
Langue originaleIS
Vues99
Coordonnées des paroles

Paroles originales

IS
Traduction indisponible. Les paroles originales sont affichées.
18
Stráin sölna, stofnar falla Stormur dauðans næðir alla Ljóselskandi, langanþrungið Lífið fyllir öll þau skörð Sækir fram í sigurvissu Svo er strítt um alla jörð Stríðsmenn falla hetjur hníga Hjaðningum er stefnt til víga Aldrei verður sæst á sakir Sækja og verjast herjum tveim Sólskinsbörn og synir skuggans Svo er strítt um allan heim Tefld er drápskák tveggja herja Tvíefld sókn og reynt að verja Öllu tjaldað: Erfðaheimsku Afturhaldi, þræladygð Móti þroskans sókn til sigurs Svo er strítt um alla byggð Fallinn er hann Fjögramaki Fyrr sem lyfti Grettistaki ÞÓ að hetja hnigi í valinn Hefjum merkið fram skal stefnt Syrgjum ei, en söfnum liði Svo skal góðra drengja hefnt